þriðjudagur, 20. ágúst 2013

Sögu- og menningarferð til Spánar og Portúgals




Ath. einstakir liðir geta tekið breytingum eða færst til.
Verð: u.þ.b. 280.000 + (miðað við gengi 15.8.2013)
Innifalið: Allar ferðir innanlands, millilandaflug, morgunmatur, matur í skoð.ferðum  og einstaka kvöldverðir, hótelgisting (3-4*), skoðunarferðir og aðgangseyrir inn á söfn og aðra staði.
Fararstjórar: Árni Hermannsson og Xavier Rodriguez (Katalóni sem talar íslensku og þekkir vel til á Spáni og í Portúgal. Er sjálfur vanur leiðsögn og rekur ferðaskrifstofu á Íslandi)

Myndasíður um Madrid og Lisabon:
http://www.aviewoncities.com/gallery/madrid.htm 
http://www3.mpifr-bonn.mpg.de/staff/pfreire/paulo/lisboa.html 
http://whc.unesco.org/en/list/381
http://en.wikipedia.org/wiki/Porto

Laugardagur 12.4.


Flug frá Keflavíkað morgni til Amsterdam og þaðan til Madrid.  Komutími seinni partinn.  Farið á hótel í miðbænum. Hótel NH Practio (www.nh-hotels.com/NH-Practico‎)

Sunnudagur 13.4.


Skoðunarferð um Madrid.  Heimsóttir verða helstu merkisstaðir borgarinnar.  Sameiginlegur hádegisverður.  Frjáls tími seinni partinn.
Madrid er að mörgu leyti ólík öðrum spænskum borgum en lífleg og hefur lengi verið hagstæð hvað verðlag snertir. Gisting: Hótel NH Practio 3*(www.nh-hotels.com/NH-Practico‎)

Mánudagur 14.4.


Heimsókn í Prado safnið og Boromeo-Thyssen safnið.  Hádegisverður innifalinn.
Prado safnið er algert ,,must" þegar borgin er heimsótt.  Safnið er eitt hið merkasta í heimi og geymir flest helstu verk spænskra málara.  Thyssen safnið er ekki síðra. Gisting: Hótel NH Practio 3* (www.nh-hotels.com/NH-Practico‎)

Þriðjudagur 15.4.


Dagsferð til Toledo.
Toledo er hin forna höfuðborg Spánar, sjarmerandi með sín þröngu stræti og fagrar byggingar.  Farið verður snemma að morgni og komið til baka seinnipartinn. Gisting: Hótel NH Practio 3* (www.nh-hotels.com/NH-Practico‎)

  

Miðvikudagur 16.4.


Heimsókn í El-Escorial og Segovia og ekið þaðan til Salamanca.
El-Escorial lét Filippus II reisa og dvaldist þar lengstum.  El-Escorial er jafnt kirkja, safn og höll og sérkennileg ein standandi á víðavangi. Segovia er einkum þekkt fyrir einhverja tröllauknustu vatnsleiðslu sem Rómverjar reistu Gisting: Horus Salamanca 4* (www.hotelhorus.com)

Fimmtudagur 17.4.


Dvalist í Salamanca.  Frjáls tími og etv. sameiginleg kvöldmáltíð.  
Í háskólabænum Salamanca voru teknar ákvarðanir sem vörðuðu sögu Spánar um aldir.  Salamanca er fyrst og fremst háskólabær, iðandi af lífi og skemmtilegum krám og veitingastöðum. 
Gisting: Hotel Horus Salamanca 4* (www.hotelhorus.com)


Föstudagur 18.4.


Ekið til Porto og skoðunarferð um borgina með púrtvínssmökkun.  Ekið síðla dags til Lissabon.   

Porto er einn höfuðstaða Portúgals og einkar fögur.  Leiðin með ströndinni frá Portó til Lissabon er meðal fegurstu ökuleiða í Evrópu. Gisting: Hotel Residential horizonte 3* (www.hotelhorizonte.com)  

Laugardagur 19.4.


Skoðunarferð og svo frjáls dagur.  
Lissabon hefur eitt fallegasta borgarstæði Pyrenneaskagans og dagsferð um borgina er ógleymanleg.  Gisting: Hótel Residential Horizonte 3* (www.hotelhorizonte.com)


Sunnudagur 20.4.


Óvænt uppákoma  Sameiginlegur kvöldverður:
Gisting: Hótel Residential Horizonte 3* (www.hotelhorizonte.com)

  

Mánudagur 21.4.


Frjáls dagur.
Stutt er í strönd ef menn vilja taka sjóbað!

Þriðjudagur 22.4.

Flug frá Lissabon til Amsterdam og þaðan heim um kvöldið.